Ráðgjöf og vefumsjón
Ráðgjöf í vefmálum, umsjón með samfélagsmiðlum, Google Ads herferðum og póstlistum.
Ég veiti ráðgjöf í vefmálum og get tekið að mér umsjón með samfélagsmiðlum, auglýsingaherferðum og póstlistum, með árangursmælingar að leiðarljósi.
Skipta má þjónustunni í nokkra flokka:
Ráðgjöf í vefmálum
- Rýning á nýjum vefum
- Greining á samkeppnisstöðu á vefnum og í leitarvélum
- Ráðgjöf um hvernig vefurinn styður best við viðskiptamarkmiðin
Google Ads
- Uppsetning og rekstur Google Ads herferða
- Árangur herferða mældur og kostnaður borinn saman við ávinning
Ég hvet sérstaklega til þess að samkeppnisstaðan í leitarvélum sé skoðuð ef ætlunin er að nýta Google Ads
Samfélagsmiðlar og póstlistar
- Umsjón og útsendingar á samfélagsmiðlum
- Umsjón og útsendingar á póstlistapóstum
- Árangur mældur svo hægt sé að sjá hvað skilar sér
Settu þig í samband og við smíðum saman lausnir sem eru sniðnar að þínum þörfum.
Önnur þjónusta
Mat á árangri af vefstarfi
Greiningarvinna, uppsetning markvissra mælinga og mælaborð fyrir stjórnendur.
Viðskiptamanna- og starfsmannakannanir
Hönnun, framkvæmd og úrvinnsla kannana á viðhorfum starfsmanna eða viðskiptavina.
Greining og kynningar
Viðamikil reynsla í framsetningu talnalegra upplýsinga þar sem mikið er í húfi og verk þurfa að vinnast hratt.